Nýjustu Mercedes-Benz bílarnir koma norður
Nýjustu Mercedes-Benz bílarnir eru að koma norður.
Dagana 11. og 12. júní verður söluráðgjafi Mercedes-Benz frá Öskju hjá Höldi á Akureyri.
Á staðnum verða nýjir og alrafmagnaðir Mercedes-Benz GLC, CLA og GLB – þrír glæsilegir bílar sem sameina framúrskarandi drægni, háþróaða tækni og glæsilega hönnun.
Sérstök kvöldopnun fimmtudagskvöldið 11. júní
Fimmtudaginn 11. júní bjóða Mercedes-Benz á Íslandi og Höldur á Akureyri til kvöldopnunar hjá Höldi þar sem söluráðgjafi Mercedes-Benz verður á staðnum til að kynna nýjustu bílana frá Mercedes-Benz og svara öllum spurningum.
Þá verður opið hjá okkur til kl 20:00.
.png)
Gestum gefst tækifæri til að kynna sér úrval nýjustu Mercedes-Benz bílana og taka þá í reynsluakstur.
Nýr Mercedes-Benz GLC
Nýr GLC kemur ríkulega búinn bæði hvað varðar þægindi og öryggi. Meðal staðalbúnaðar eru:
- Allt að 715 kílómetra drægni
- Rafdrifið dráttarbeisli með 2400 kg dráttargetu
- LED framljós með háþróaðri ljósastýringu
- Bílastæðaaðstoð með skynjurum að framan og aftan
- MBUX snjallkerfi með snertistýringu og raddstýringu
- Íslenskt leiðsögukerfi
- Rafdrifnar sætastillingar með minni
- Háþróuð aksturs- og öryggiskerfi
- 360° Myndavél
- Digital Extras snjallforrit
- Glerþak með SKY CONTROL
- 22 kW AC hleðslugeta

Nýr Mercedes-Benz GLB
Nýr GLB kemur ríkulega búinn bæði hvað varðar þægindi og öryggi. Meðal staðalbúnaðar eru:
- Allt að 614 kílómetra drægni
- Fjórhjóladrif
- LED framljós með háþróaðri ljósastýringu
- Bílastæðaaðstoð með skynjurum að framan og aftan
- MBUX snjallkerfi með snertistýringu og raddstýringu
- Íslenskt leiðsögukerfi
- Rafdrifnar sætastillingar með minni
- Háþróuð aksturs- og öryggiskerfi
- 360° Myndavél
- Digital Extras snjallforrit
- Panoramic glerþak
- 320 kW DC hleðslugeta (800V)

Nýr Mercedes-Benz CLA
Nýr CLA býður upp á framúrskarandi drægni, háþróaða tækni og glæsilega hönnun. Meðal staðalbúnaðar eru:
- Allt að 792 kílómetra drægni
- 800 volta hleðslukerfi fyrir afar hraða hleðslu
- LED framljós með stjörnuljósamynstri
- MBUX Superscreen með snertistýringu og raddstýringu
- Íslenskt leiðsögukerfi
- Digital Extras snjallforrit
- Panorama glerþak
- Rafdrifin framsæti með minni
- Háþróuð aksturs- og öryggiskerfi
- Bílastæðaaðstoð með myndavél og skynjurum
- Varmadæla fyrir aukna nýtni og drægni

Komdu við, skoðaðu bílana, fáðu ráðgjöf og reynsluaktu!
Við hlökkum til að taka vel á móti ykkur.